Pantanir
Pantanir þurfa að berast fyrir klukkan 12:00, daginn fyrir afhendingu.
Heimsending
Við sendum um land allt.
Hér er hægt að sjá afgreiðslustaði Flytjanda.
Sækja
Hægt er að sækja í Hafnarfirði, Granda eða Bíldshöfða.
Kvöldstund með ítalska matreiðslu- meistaranum Michele Mancini
Stórvinur okkar Michele Mancini verður hjá okkur í febrúar og kennir okkur öll helstu trixin í ítalskri matargerð.
Boðið verður uppá námskeið í ítalskri matargerð öll miðvikudags- og fimmtudagskvöld í febrúar. Námskeiðið er ein kvöldstund, hefst kl. 19:30 og verður haldið að Dalshrauni 13 Hafnarfirði.
Við fylgjumst með Michele Mancini elda 10 klassíska ítalska rétti á sinn hátt. Við fáum að smakka á öllum hans réttum ásamt ítölskum vínum sem sérfræðingar okkar hafa parað með og munu þeir einnig veita fræðslu um vínin.
–
ATH: Greiða þarf fyrir námskeiðið í gegnum vefverslun. Ekki er hægt að greiða við afhendingu. Bókunin telst ekki gild sé valið „greiða við afhendingu“.