Jólagjafir fyrirtækja og einstaklinga

Gjafakort eða hágæða vörur í jólapakkann 🎁

Eins ótrúlegt og það hljómar fer að líða að jólum!
Að því sögðu langar okkur að minna á að við erum með tilvaldar jólagjafir til starfsfólks fyrirtækja, velunnara eða jólagjafir fyrir þig og þína en gjafakortin og jólakassarnir okkar hafa verið virkilega vinsælar jólagjafir síðustu ár.

Gjafakortin okkar eru send út í rafrænu formi og sá sem gjafakortið fær setur það í Apple Wallet eða Google Wallet hjá sér, eins er hægt að fá það í PDF formi til útprentunar. Hægt er að nota gjafakortin í verslunum okkar Hafnarfirði, Granda og Bíldshöfða eða í vefverslun.

Gjafakort Kjötkompaní renna aldrei út!

 

Hægt er að velja milli nokkurra samsettra jólakassa en einnig er hægt að láta setja saman eigin útgáfu af kassa með ykkar eftirlætis vörum.
Skoða jólakassa með því að klikka hér!

Endilega hafið samband við [email protected] eða í síma skrifstofu 578-9700 fyrir frekari upplýsingar eða til þess að ganga frá pöntun á glæsilegum jólagjöfum.

Aðrar fréttir & greinar